Snjósleðaferð og Suðurströnd
Lengd
10 klst
Erfiðleikastig
Auðvelt
Brottför frá
Reykjavík
Verð frá
33.990 ISK
Þessi ferð hefst með því að við sækjum þið á gististaðinn þinn í Reykjavík. Rútan ekur síðan með þig sem leið liggur austur fyrir fjall til móts við Mýrdalsjökul.
Þegar komið er í bækistöð okkar við jökulræturnar er farið í hlífðar og öryggisbúnað og síðan ekið sem leið liggur upp heiðina í trukk til móts við jökulinn og eldfjallið Kötlu þar sem sleðarnir bíða.
Þegar búið er að fara yfir öryggisatriði og kenna á sleðana er haldið upp á Mýrdalsjökul og ekið áleiðis að brún Kötlu öskjunnar. Eftir klukkustund er komið til baka aftur og ekið til baka niður í bækistöðar okkar þar sem rútan bíður og ekur síðan með þig aftur til Reykjavíkur. Á leiðinni er stoppað við Skógafoss og Seljalandsfoss og notið þeirrar einstöku náttúru sem þeir hafa upp á að bjóða.
Gerð er krafa um að sá sem ekur snjósleða sé með gilt ökuskírteini.
Greitt er aukalega 10.000 kr. fyrir að vera einn á sleða (eða þegar bókað er oddatala)
Vinsamlegast athugið að í þessari ferð er innifalið, rútufar frá Reykjavík, snjósleðaferð og stopp á Skógafossi og Seljlandsfossi
Innifalið:
- Leiðsögumaður (íslenska/enska)
- Snjósleði (tveir á sleða)
- Sleðagalli
- Lambhúshetta
- Hjálmur
- Skór
- Pick up á gisitstað í Reykjavík
- Rútufar
- Suðurströnd
- Skógafoss
- Seljalandsfoss
Vörunúmer: AG009

Myndband
Bóka
Loading...